Tungl dagbókin fyrir 2022 er komin!
Í ár fæst bókin í tveimur litum, sægrænum og antíkbleikum.
Þetta er harðspjaldabók með fallegu fíngerðu strigaefni og gull þrykkingu sem glampar á.
Bókin inniheldur fróðleik um tunglið og stjörnuspeki, ræktun og tínslu jurta í takti með tunglinu og fróðleik um tíðahringinn.
Skipulags hluti dagbókarinnar er með viku á opnu, sér opnu fyrir hvern mánuð og skipulags opnu í byrjun hvers mánaðar. Eins er ein síða til að skrifa á fyrir hvert fullt og nýtt tungl.
Á hverjum degi sjáum við stöðu tunglsins og helstu afstöður himintunglanna og getum þannig fylgst með gangi þeirra.
Hún er betrumbætt útgáfa af fyrstu tungl dagbókinni frá því í fyrra, með meiri upplýsingum um tunglið, tíðahringinn og jurtir.
Við bættum við upplýsingum frá grasalækni um hvaða jurtir er hægt að týna hér á Íslandi, flokkað eftir mánuðum.
Eins eru upplýsingar um hvaða jurtir er hægt að rækta hér á landi og hvaða ilmkjarnaolíur er hægt að nota til að styðja við tíðahringinn.
Þetta er bók sem hjálpar okkur að tengjast takti náttúrunnar, taka eftir tunglinu og stjörnunum og á sama tíma er hún mjög praktísk og hönnuð til að hjálpa fólki við að halda utan um skipulagið sitt.
Hún er fullkomin bæði fyrir fólk í vinnu, skólafólk, sjálfstæða atvinnurekendur og einfaldlega alla sem vilja skipuleggja líf sitt betur.
Frí heimsending á Íslandi ef þú kaupir 3 eða fleiri bækur.
Inga (verified owner) –
Frábær, fróðleg og nothæf bók
Ragnheiður Harpa (verified owner) –
Svo falleg og upplýsandi!
Guðrún (verified owner) –
Dásamleg, falleg, fræðandi, ítarleg og guðdómleg bók, nákvæmlega það sem allar konur þurfa til að fylgjast sem best með líðan sinni 🙂 Takk fyrir mig 🙂
Una Lilja (verified owner) –
Verulega vönduð og falleg bók sem heldur manni jarðtengdum
Freyja Burknadóttir (verified owner) –
Svo vönduð og falleg dagbók, mjög mikill fróðleikur í þessari dagbók og heldur manni vel í að fylgjast með sinni líðan og tíðahring
Alveg ómissandi, mun klárlega kaupa aftur á næsta ári 🥰
Svava (verified owner) –
Æðisleg dagbók! Fer með mér allt og uppfyllir allt sem þarf! 🙂 Einstaklega falleg líka
Elsa María Blöndal (verified owner) –
Æðisleg dagbok! Svo gaman að geta flett upp öllum fróðleiknum um gang himintunglanna og hvetjandi að geta skrifað niður og sett sér ásetning. Elska tungldagbokina mína 🙂
Sæunn Kjartansdóttir (verified owner) –
Æðisleg dagbók! Full af lífsfróðleik og mikið pláss fyrir skrif. Elska líka habit trackerinn. Svo er hún líka svo fallega hönnuð. Takk fyrir mig!
Iðunn (verified owner) –
Þessi bók er ótrúlega falleg og vönduð. Hún inniheldur dýrmætar upplýsingar sem að við gerum nýtt okkur til að beisla orkuna í kring um okkur og öðlast dýpri skilning á okkur sjálfum.